Járnbækur á ljósastaurum varða nú leiðina frá Amtsbókasafninu á Akureyri að Nonnahúsi og hafa þær vakið ómælda athygli vegfarenda. Birtar eru opnur úr völdum íslenskum barnabókum sem gaman er að lesa úr þegar fólk staldrar við ljósastaurana á gönguferðum sínum. Þannig getur fjölskyldan sameinað útivist og lestur og um leið aukið áhuga barnanna á lestri.
Bækurnar eru settar upp af Barnabókasetri, rannsóknarsetri um barnabókmenntir og lestur barna við Háskólann á Akureyri. Setrið hefur það að markmiði að efla bóklestur barna og unglinga og auka veg barnabókmennta í samfélaginu.Þetta kemur fram á akureyri.is
Nánar um þetta á Barnabókasetur.