SA Víkingar og Björninn hafa tryggt sér sæti í úrslitakeppni karla í íshokkí og munu heyja einvígi um Íslandsmeistaratitilinn. Liðin eiga í harðri baráttu um heimaleikjaréttinn en annar leikur liðanna á fjórum dögum í deildinni fór fram á Akureyri sl. þriðjudag. Þar fögnuðu heimamenn í SA 3-2 sigri eftir að hafa lent tveimur mörkum undir snemma leiks. Liðin eru nú jöfn að stigum á toppi deildarinnar en Björninn hefur betri markatölu.