Baldvin Sigurðsson leiðir framboðslista Regnbogans í NA-kjördæmi

Baldvin Sigurðsson stendur vaktina í Flugkaffi á Akureyrarflugvelli og stefnir í pólitík.
Baldvin Sigurðsson stendur vaktina í Flugkaffi á Akureyrarflugvelli og stefnir í pólitík.

„Viðtökurnar hafa verið góðar. Ég er núna staddur hjá einu stærsta iðnaðarfyrirtæki bæjarins og það er biðröð í að skrifa á listann,“ segir Baldvin Sigurðsson veitingamaður á Akureyri í samtali við Vikudag.

Baldvin safnar nú undirskriftum á lista Regnbogans sem stefnir á framboð í komandi alþingiskosningum í vor. Regnboginn býður fram í öllum kjördæmum landsins og mun Baldvin leiða listann í NA-kjördæmi. Þorsteinn Bergsson, bóndi á Unaósi, mun skipa annað sætið.

„Ástæðan fyrir því að ég býð mig fram er að ég er ósáttur við Vinstri græna. Þegar langt var liðið á landsfund VG og allt landsbyggðafólkið farið heim kom fram tillaga um að halda áfram viðræðum við ESB. Það voru svik,“ segir Baldvin.

throstur@vikudagur.is

Nýjast