Inga A. Karlsdóttir útibússtjóri Landsbankans á Akureyri segir að mikilar breytingar hafi orðið að starfsemi fjármálastofnana frá hruni, reglur endurskoðaðar og allt sé nú í fastari skorðum. Hún segir að þeim fjölgi stöðugt sem stundi sín bankaviðskipti heima.
Fjármál eru persónuleg og viðkvæm en þau eru sömuleiðis mikilvæg. Margir eru óöruggir á þessu sviði og telja sig skorta þekkingu og veigra sér kannski við að fara til ráðgjafa af þeim sökum. Því miður höfum við ekki lagt nógu mikla áherslu á að fræða fólk um fjármál, það á við um skólakerfið og bankakerfið líka þó vissulega sé margt vel gert á þessu sviði. Eðlilegast væri að kenna börnum og unglingum í grunnskólanum að hugsa um fjármál en eins og allir vita er fjármálafræðsla í skólum mjög takmörkuð. Það þurfa allir að öðlast yfirsýn yfir sín fjármál og því betri sem undirstaðan er, þeim mun auðveldara verður framhaldið.
ítarlega er rætt við Ingu í prentútgáfu Vikudags