Bæjarráð Akureyrar samþykkti í dag 7,5 milljóna króna styrk til Menningarfélags Akureyrar til þess að tryggja samfellu í starfsemi Leikfélags Akureyrar. Erindi barst frá varaformanni stjórnar leikfélagsins þar sem óskað var eftir styrknum. Tillagan um að veita styrkinn var samþykkt með meirihluta atkvæða í bæjarráði í dag en einn fulltrúi sat hjá við afgreiðslu.
Menningarfélag Akureyrar mun annast rekstur Leikfélags Akureyrar, Hofs og Sinfóníuhljómsveit Norðurlands í samræmi við núverandi samninga félagana þriggja við Akureyrarbæ. Sameiningin hafði áður verið samþykkt af öllum félögunum þremur.
Helsta markmið nýs félags er að tryggja samstarf og samræmingu milli stærri viðburða sem haldnir eru á Akureyri og stuðla að öruggum rekstri, góðri meðferð og nýtingu opinberra fjármuna. Einnig á nýtt félag að auka fjölbreytileika í menningar- og listalífi Norðurlands.