Akureyrarbær mun sjá um allan garðslátt í bænum í sumar en undanfarin ár hefur slátturinn verið boðinn út. Oddur Helgi Halldórsson, bæjarfulltrúi L-listans, segir ákvörðunina pólitíska.
Það var ákveðið á sínum tíma að bjóða verkið ekki út. Ávinningurinn við að láta verktaka slá hefur ekki verið mikill og einnig hefur borið á óánægju meðal bæjarbúa með sláttinn undanfarin ár, en hann hefur verið misjafn á milli verktaka. Við teljum að starfsmenn bæjarins geti sinnt slættinum með sóma og þarna skapast einnig fleiri störf hjá bænum. Oddur segir að með þessu verði útlagður kostnaður Akureyrarbæjar minni en ella. Við þurftum að vísu að bæta við okkur tækjum en að sama skapi nýtum við mannskapinn betur. Þetta er því skilvirkara.
throstur@vikudagur.is