"Bænin í fangelsinu sú fallegasta sem við höfum heyrt"

Sóley María og Kristín skoða myndir sem teknar voru í ferðinni/mynd karl eskil
Sóley María og Kristín skoða myndir sem teknar voru í ferðinni/mynd karl eskil

Mæðgunar Kristín S. Bjarnadóttir og Sóley María Hauksdóttir í Sigluvík á Svalbarðsströnd fengu heimild fangelsisyfirvalda til að heimsækja Íslendinginn Geir Gunnarsson, sem setið hefur í Greensville fangelsinu í Virginíu í Bandaríkjunum í sextán ár. Mæðgurnar eru nú komnar heim, reynslunni ríkari.

Spenna í loftinu

Með Kristínu og Sóleyju voru Guðrún, móðir Geirs og bróðurdóttirin Shelby, en hún og Sóley eru jafnöldrur. Guðrún og Shelby eru búsettar í Bandaríkjunum. „Þær hafa heimsótt Geir reglulega, þess vegna treysti ég mér til að leyfa Sóleyju að koma með í fangelsið,“ segir Kristín. „Auðvitað var spenna í loftinu, sérstaklega þegar við nálguðumst fangelsið og við okkur blöstu öll þessi tonn af gaddavír með hnífsblöðum og mörg öryggishlið með tilheyrandi eftirliti. En við vorum tilbúnar. Þetta var fyrst og fremst vinaheimsókn, mikill áhugi fjölmiðla hafði ekki hvarflað að okkur. Heimsóknin var í alla staði yndisleg og það að hitta Geir loksins eftir öll þessi ár var ólýsanlegt. Við mæðgurnar fórum sannarlega ríkari heim.“

Umræðuefnið í upphafi?

„Geir sagði okkur frá lífinu í fangelsinu og hversu innilega þakklátur hann væri okkur og öðrum fyrir veittan stuðning. Hann sagði okkur frá glæpnum sem hann framdi og afleiðingum hans. Honum líður mjög illa út af þessu öllu og hafði þörf fyrir að fá að segja okkur sjálfur frá þessu,“ segir Sóley.

Bænin

Þegar kveðjustundin var rétt að renna upp, spurði Geir hvort hann mætti biðja með gestunum. Mæðgurnar segja að sú stund hafi verið mögnuð. „Þarna sátum við öll fimm saman í kringum lágt borð, héldumst fast í hendur og hann fór með, frá eigin brjósti, þá fallegustu bæn sem við höfum heyrt. Þessi helga stund þarna mitt inni í þessari nöturlegu umgjörð var engu lík og nærði inn að hjartarótum,“ segir Kristín S. Bjarnasóttir.

Ítarlega er rætt við þær mæðgur í prentútgáfu Vikudags

Reikingsnúmer styrktarsjóðs Geirs er:

515-14-612840, kennitala: 630307-0900

 

 

Nýjast