Hérna í Svarfaðardalnum er gríðarlegur snjór og við vitum ekki ennþá hvað leynist undir snjónum og krossleggjum því fingur og vonum að túnin kali ekki. Hins vegar rigndi gríðarlega nokkrum sinnum í vetur, þannig að svellalög mynduðust, segir Gunnhildur Gylfadóttir bóndi á Steindyrum í Svarfaðardal og formaður Búnaðarsambands Eyjafjarðar.
Almennt hafa bændur miklar áhyggjur af yfirvofandi kali. Gunnhildur segir að margir norðlenskir bændur hafi gripið til þess ráðs að lóga gripum og draga þannig úr heynotkun.
Ástandið er sérstaklega alvarlegt í Hörgárdalnum, Öxnadalnum og utanverðum Eyjafirði. Hugsanlega sleppa flestir fyrir horn ef vorið kemur á næstu dögum, það má í raun og veru ekkert út af bera í þessum efnum, segir Gunnhildur.
Sauðburður
Sauðburður er hafinn á einhverjum bæjum, eða byrjar á allra næstu dögum. Víða er ekki hægt að setja út féð vegna fannfergis. Ef hýsa þarf féð lengi, ganga lömbin hart að ánum og hætta skapast á júgurbólgu með tilheyrandi vandræðum.
Nánar um þetta mál í prentútgáfu Vikudags.