Foreldrar og forráðamenn eru hvattir til að gefa sér góðan tíma til að ræða netheilræðin við börnin og hjálpa þeim með því móti að nýta sér jákvæðar hliðar netheima og hamla gegn neikvæðum hliðum upplýsingatækninnar. SAFT‐ Samfélag, fjölskylda og tækni er vakningarátak um örugga tækninotkun barna og unglinga á Íslandi. Verkefnið er hluti af Safer Internet Action Plan, aðgerðaáætlun Evrópusambandsins um örugga netnotkun, og er styrkt af ESB. Samningsaðili við ESB er Heimili og skóli - landssamtök foreldra, sem sjá um að annast útfærslu og framkvæmd verkefnisins að öllu leyti fyrir Íslands hönd.