Bæjarfulltrúi mótmælir lágum launum í unglingavinnu

„Mín skoðun er sú að með betri launum aukist vinnugleðin,“ segir Sigurður Guðmundsson bæjarfulltrúi A-listans á Akureyri. Laun unglinga í Vinnuskóla Akureyrarbæjar hækka um 3,25% í sumar frá fyrra ári. Tillaga þess efnis var samþykkt meðfjórum atkvæðum gegn atkvæði Sigurðar á bæjarráðsfundi.

„Ég hefði viljað sjá 20% hækkun. Það er miklu meiri hvati fyrir krakkana að vinna fyrir launum en ekki einhverjum  „tittlingaskít“. Unglingur sem fær borgað rétt um 300 krónur á tímann nennir varla að mæta í vinnuna.

Það er hægt að gera miklu betur fyrir unglingana og mér finnst þessi laun ekki vera nægilega hvetjandi fyrir þá,“ segir Sigurður. Laun unglinga í Vinnuskólanum fara eftir aldri. 14 ára krakkar fá 368 krónur á tímann, 15 ára fá 420 kr. og 16 ára 553 kr., samkvæmt ákvörðun meirihluta bæjarráðs.

 throstur@vikudagur.is 

Nýjast