Hérna í kjördæminu er til nóg af hæfu fólki til að skipa framboðslista flokksins og ég hef á fundum lýst yfir eindregnum stuðningi við Höskuld Þórhallsson í fyrsta sæti framboðlistans, segir Guðmundur Baldvin Guðmundsson bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins á Akureyri. Framsóknarfólk ræddi á fundi í gær ákvörðun Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar formanns flokksins um að bjóða sig fram í kjördæminu. Til stóð að formaðurinn kæmi norður í dag til að ræða málið, en úr því varð ekki.
Guðmundur telur skynsamlegast að formaður flokksins bjóði sig fram í Reykjavík. Við þurfum að vinna vígi í höfuðborginni og Sigmundur Davíð er rétti aðilinn til að ráðast í það verkefni, enda hefur hann staðið sig vel. Í höfuðborginni eru flest atkvæðin og þess vegna er nauðsynlegt að mínu viti að formaður flokksins fari fyrir framboðslista þar.
Hvað segir hinn almenni flokksmaður á Akureyri um stöðuna?
Menn eru bara hissa. Ég held að Höskuldur njóti trausts hérna í bænum, þannig að hann á vísan stuðning margra komi til kosninga. Þessi staða er auðvitað ekki góð fyrir flokkinn, vonandi tekst að landa málinu þannig að allir verði sáttir.
karleskil@vikudagur.is