Bæjarbúar hreinsi til

Akureyri. Mynd/Karl Eskil.
Akureyri. Mynd/Karl Eskil.

Akureyrarbær hvetur bæjarbúa til að taka höndum saman við að hreinsa til í bænum eftir veturinn og taka á móti sumrinu með brosi á vör. Starfsmenn Akureyrarbæjar munu ekki fjarlægja garðaúrgang frá lóðarmörkum en gámar verða staðsettir í hverfum bæjarins frá 13.-22. maí. Gámarnir verða á eftirtöldum stöðum:

Kaupangur
Hagkaup
Hrísalundur
Bónus við Kjarnagötu
Bónus við Langholt
Aðalstræti sunnan Duggufjöru
Bugðusíða við leiksvæði
Verslunarmiðstöðin Sunnuhlíð

Nýjast