Bæjarbúar flykkjast í Brynjuís

„Það kemur alltaf kippur í söluna á vorin með hækkandi sól,“ segir Fríður Leósdóttir eigandi Brynju ísbúðinnar á Akureyri. Ísbúðin er ein sú rótgrónasta á landinu og óhætt að segja að ísinn sé einn sá vinsælasti í bænum og ná vinsældirnar jafnvel langt út fyrir bæjarmörkin. „Það er búið að vera brjálað að gera undanfarna daga. Þegar sólin fer að skína á vorin er eins og allir bæjarbúar fái útivistarleyfi,“ segir Fríður og hlær. „Svo er alltaf góð sala á kvöldin og einnig þegar það eru stórir viðburðir í bænum, þá myndast yfirleitt langar raðir."

Heimagerður ís

Aðspurð um hvað sé vinsælast á ísseðlinum nefnir Fríður bragðarefina og hvítan ís í brauði. En hver er galdurinn á bak við vinsældirnar? „Þetta er heimagerður og ferskur ís sem við leggjum mikla rækt við og ég held að fólk kunni að meta það.“ Auk þess að sjá um almennan rekstur stendur Fríður vaktina í afgreiðslunni eftir þörfum og skúrar reglulega á kvöldin. „Ég er t.d. búinn að standa vaktina nánast daglega undanfarnar 5-6 vikur. Mér finnst alltaf jafn gaman að afgreiða ísinn.“

throstur@vikudagur.is

Nýjast