Fargjaldið á leiðum okkar innanlands hækkar líklega um 4-5% vegna þessara skatta, segir Árni Gunnarsson ramkvæmdastjóri Flugfélags Íslands. Frá 1. apríl hækka farþegagjöld á Reykjavíkurflugvelli um 40% og lendingargjöld hækka sömuleiðis verulega. Þessi gjöld hækkuðu á síðasta ári yfir 70% og segir Árni að arþegum hafi fækkað í kjölfarið.
Farþegum var farið að fjölga eftir hrun, en í kjölfar þessara hækkana í fyrra fækkaði farþegum á nýjan leik. Ég óttast að farþegum fækki þegar þessar hækkanir verða að veruleika 1. apríl, því við getum ekki annað en hækkað fargjaldið. Við þurfum líklega að fækka ferðum í kjölfarið, til dæmis á milli Reykjavíkur og Akureyrar. Aukin skattheimta bitnar með öðrum orðum á þjónustunni.
Samtök ferðaþjónustunnar hafa mótmælt gengdarlausum hækkunum gjalda á innanlandsflug. Samtökin segja að almenningssamgöngur í flugi séu látnar gjalda fyrir auknar greiðslur til annarra samgöngumáta. Milljarðaaukning er sett í strætósamgöngur, aukið fé í ferjur en álögur á flugið hafa verið þrefaldaðar á örfáum árum, segir í ályktun Samtaka ferðaþjónustunnar.