22. nóvember, 2012 - 10:19
Framkvæmdaráð Akureyrarbæjar hefur ákveðið að starfandi hverfisnefndir á Akureyri fái hver um sig tvær milljónir króna til ráðstöfunar í umhverfismálum innan síns hverfis á árinu 2013. Þá er einnig gert ráð fyrir að hverfisráðin í Hrísey og Grímsey fái eina milljón króna hvort sem varið verði til uppbyggingar í umhverfismálum. Þeir fjármunir sem lagðir verða til hverfisnefnda og ráða eru hluti af afmælisgjöf bæjarstjórnar Akureyrar til að bæta umhverfi íbúa sveitarfélagsins í tilefni af 150 ára afmæli kaupstaðarins. Nú eru einungis starfandi hverfisnefndir í Naustahverfi, Lunda- og Gerðahverfi og Holta- og Hlíðahverfi, auk hverfisráðanna í Grímsey og Hrísey. Framkvæmdaráð vonast til að með þessu framlagi megi efla og virkja betur þær nefndir sem nú þegar eru starfandi og blása nýju lífi í starf þeirra nefnda sem lagst hafa í dvala.