Akureyrarbær auglýsir væntanlega á næstunni eftir tilboðum í vatnsrennibraut og uppgöngustigahús við Sundlaug Akureyrar, áætlað er að mannvirkið kosti um 100 milljónir króna. Kærunefnd útboðsmála stöðvaði í janúar kaup bæjarins á rennibraut og stigahúsi, eftir að Spennandi ehf. kærði fyrirhuguð innkaup bæjarins. Oddur Helgi Halldórsson formaður framkvæmdaráðs Akureyrarbæjar er ekki sáttur við niðurstöðu kærunefndar.
Útboðsgögn verða væntanlega tilbúin á næstu dögum, en það er ljóst að þessi niðurstaða kærunefndar seinkar öllu ferlinu. Það er alveg á mörkunum að nýtt mannvirki verði risið fyrir sumar traffíkina.
Sigurður Guðmundsson bæjarfulltrúi Bæjarlistans hefur sagt frá því á Facebook síðu sinni að hann hafi hvatt Spennandi ehf. til að kæra Akureyrarbæ. Sigurður telur augljóst að ekki hafi verið staðið rétt og eðlilega að fyrirhuguðum kaupum á rennibraut.
karleskil@vikudagur.