Bjarni Jónasson/mynd karl eskil
Velferðarráðuneytið hefur auglýst laust til umsóknar embætti forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri. Heilbrigðisráðherra skipar í stöðuna, en Halldór Jónsson fráfarandi forstjóri var í síðasta mánuði skipaður forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja.
Halldór var í leyfi í fyrra, en átti að mæta til starfa 1. febrúar á þessu ári, en því var ítrekað frestað. Bjarni Jónasson hefur verið starfandi forstjóri og hefur hann verið skipaður í stöðuna til 1. ágúst.