Guðjón Andri Gylfason, lífefnafræðingur (M. Sc.) og framhaldskólakennari heldur fyrsta erindið á fimmtudagsfyrirlestraröð Akureyrarakademíunar í vetur, erindið er hluti af rannsóknarvinnu Andra til doktorsprófs í lífefnafræði frá Háskóla Íslands.
Í erindinu sem ber heitið Þáttun og greining frumuhimnuhluta úr þarmaþekju Atlantshafsþorsks (Gadus morhua), mun Andri fjalla um þáttun frumuhimnu þarmaþekjufrumna í Atlantshafsþorski og segja frá samsetningu þeirra m.t.t. prótína, lípíða og fitusýra. Samsetning lípíða og fitusýra þessara frumuhimnuhluta er á margan hátt ólík hinni hefðbundnu mynd sem þekkt er frá öðrum frumutegundum og öðrum lífverum. Þar ber hæst hátt hlutfall spiníngólípíða og Nervonic sýru (24:1n9) sem er óþekkt í lífheiminum í því magni sem hún fannst í þessum frumum. Andri reynir eftir fremsta megni að setja efnið fram á almennum nótum og því alls óþarft að vera lærður á sviði raunvísinda til þess að hafa ánægju af.
Erindið verður flutt á morgun fimmtudag, í Samkomuhúsi Leikfélags Akureyrar, Borgarasal klukkan 17:00. Allir eru velkomnir. Aðgangur ókeypis og heitt verður á könnunni.
Leikkonurnar Aðalbjörg og Anna Gunndís verða á staðnum og taka á móti börnum og hafa ofan af fyrir þeim á meðan foreldrar hlýða á erindið.