Ástarkaktusar á Valentínusardag

Um klukkan 16 í dag, Valentínusardag, munu leikarar Leikfélags Akureyrar gefa gestum og gangandi á Glerártorgi svokallaða Ástarkaktusa.  Þessir kaktusar eru ekki frábrugðir öðrum kaktusum í útliti, en ólíkt hefðbundnum kaktusum boðar það gæfu og ást að gefa og þiggja Ástarkaktus.

Þessi gjafmildi stafar af því að verið er að vekja athygli á að Leikfélag Akureyrar frumsýnir leikritið Kaktusinn í Samkomuhúsinu þann 1.mars næstkomandi.  Um er að ræða æsispennandi verk sem gerist á lögreglustöð í Frankfurt eftir að grunaður hryðjuverkamaður er handtekin. Ragnheiður Skúladóttir, leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar, leikstýrir verkinu og leikarar eru þau Anna Gunndís Guðmundsdóttir, Aðalbjörg Árnadóttir, Einar Aðalsteinsson og Hannes Óli Ágústsson

Nýjast