Skarpur útgáfufélag á Húsavík og Ásprent á Akureyri hafa gert með sér samkomulag um að Ásprent taki við þeirri þjónustu sem Skarpur útgáfufélag hefur haldið úti varðandi prentun og prenttengd verkefni á Húsavík. Einnig mun Ásprent annast prentun á Skránni og Skarpi. Skarpur útgáfufélag mun áfram gefa út Skrána og Skarp auk annarrar útgáfustarfsemi.
Ásprent er hluti af Ásprenti Stíl ehf. sem einnig rekur stafrænu prentstofuna Stell og auglýsingastofuna og skiltagerðina Stíl.
Ásprent er stærsta prentsmiðjan utan höfuðborgarsvæðisins og á fyrirtækið stóran hóp traustra viðskiptavina um allt land.
Ásprent hefur ráðið Sigrúnu Ingvarsdóttur til starfa á Húsavík og mun hún sinna viðskiptavinum á því svæði.
Ætlunin er að auka þjónustustig á prenttengdri þjónustu á Húsavík og bjóða betri lausnir og þjónustu varðandi merkingar, límmiða og stafræna prentun, segir í tilkynningu.