Hostelið og veitingastaðurinn Akureyri Backpackers hefur boðið upp á lifandi tónlist á miðvikudagskvöldum í vetur. Ókeypis aðgangur er á tónleikana og fjölmargir listamenn hafa komið fram og skemmt gestum með tónlist sinni. Meðal þeirra sem hafa komið fram eru Karl Henrý, Þorsteinn Kári, Sockface, Axel Flóvent, Mafama, Kristján Pétur og fleiri.
Í kvöld stígur Arnaldur á stokk og leikur efni af nýútkominni plötu sinni, Línur. Arnljótur er betur þekktur sem meðlimur hljómsveitanna Ojba Rasta og Sin Fang.
Tónleikar hefjast iðulega um kl. 20:30 og á döfinni eru:
29. janúar: Hljómsveitin Eva
5. febrúar: Dj Flugvél & Geimskip
19. febrúar: Hjörleifur Örn Jónsson