Anna Sonja Ágústsdóttir hjá Skautafélagi Akureyrar (SA) og Ólafur Hrafn Björnsson hjá Birninum eru íshokkífólk ársins. Anna er 24 ára varnarmaður og hefur leikið allan sinn feril með SA, að undanskildu einu ári er hún lék með Malmö Redhawks í Svíþjóð.
Anna Sonja hefur spilað með öllum landsliðum kvenna á Íslandi frá upphafi. Hún er fyrirliði kvennaliðs SA, sem er núverandi deildar- og Íslandsmeistari, og er auk þess fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins. Á tveimur síðastliðnum heimsmeistaramótum sem Ísland hefur tekið þátt í hefur Anna verið valinn besti varnarmaður mótsins. Hún er auk þess fyrst kvenna til að vera valinn íshokkíkona ársins oftar en einu sinni.
Ólafur Hrafn er tvítugur sóknarmaður og lék lykilhlutverk með Birnunum sem tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í fyrsta sinn sl. vor. Hann hóf ungur að æfa íshokkí í Svíþjóð og hefur allan sinn feril leikið þar eða með Birninum. Ólafur hefur undanfarin ár verið með stiga- og markahæstu leikmönnum á Íslandsmótinu.