Anna opnar sýninguna MIKADO í Gallerí Ráðhús

Listakonan Anna Gunnarsdóttir opnar sýningu í Gallerí Ráðhús, sem er staðsett í bæjarstjórnarsal ráðhússins, á morgun föstudaginn 15. janúar kl. 12.00.  
Sýninguna nefnir hún MIKADO en verkin eru unnin út frá japanska spilinu mikado þar sem leikmenn spila með prik. Öll verkin á sýningunni eru unnin með shibori tækni og indigo lituð.  

Shibori er gömul japönsk tækni sem notuð er við það að búa til munstur á efni sem síðan eru lituð. Efnin eru sett á pappa hólka sem lokið hafa sínu starfi að halda textil efnum og fá nýtt hlutverk í leik sem listaverk á vegg. "Þetta er leikur minn  með mikado spil" segir Anna.

Hún lærði textilhönnun á Íslandi og Danmörk auk þess að hafa sótt fjölda námskeiða um textil. Anna hefur síðari ár aðallega fengist við vinnslu á þæfðri ull og textil. Hún blandar saman nytjavöru, myndlist og fatahönnun með þessum miðlum. Anna á að baki fjölda sýninga víðs vegar um heim og hefur hlotið verðlauna og viðurkenningar fyrir verk sín. Hún er annar eigandi gallerý Svartfugl og Hvítspóa í miðbæ Akureyrar og er félagi í Textílfélaginu, Myndlistarfélaginu og Sambandi íslenskra myndlistarmanna. Anna var valin bæjarlistamaður Akureyrar árið 2008.

Nýjast