Andrea Hjálmsdottir bæjarfulltrúi Vinstri grænna á Akureyri hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér til að leiða framboðslista VG við komandi bæjarstjórnarkosningar.
"Eftir langa og stranga yfirlegu hef ég ákveðið að gefa ekki kost á mér til að leiða lista VG áfram fyrir næstu sveitastjórnarkosningar. Þetta var mjög erfið ákvörðun að taka en að vinna fyrir Akureyringa þessi síðustu ár fjögur ár hefur verið krefjandi, lærdómsríkt og sérlega skemmtileg. Ákvörðun mín er tekin út frá persónulegum ástæðum. Breyttar aðstæður hafa knúið mig til að endurskoða forgangsröðun þeirra verkefna sem lífið býður upp á. Ég hef því ákveðið að snúa mér að öðrum verkefnum. Ég er þó ekki hætt afskiptum af stjórnmálum, ég mun starfa áfram á vettvangi Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs og trúi því að stefna VG sé sú mannúðlegasta sem íslensk stjórnmál bjóða uppá og mun því halda áfram að vinna henni framgöngu," segir Andrea í tilkynningu til fjölmiðla í morgun.