Alvarleg staða í leikskólum Akureyrarbæjar

Leikskólinn Hólmasól á Akureyri
Leikskólinn Hólmasól á Akureyri

Vegna veikinda hefur álag á starfsfólk leikskóla Akureyrarbæjar aukist verulega í vetur. Settur hefur verið á laggirnar sérstakur starfshópur, sem ætlað er að greina vandann og leita lausna.

„Staðan er mjög alvarleg,“ segir Preben Jón Pétursson formaður skólanefndar Akureyrarbæjar. Vegna veikinda hefur álag á starfsfólk leikskóla bæjarins aukist verulega í vetur og segir Preben Jón að veikindin hafi aukist jafnt og þétt og náð sögulegum hæðum í vetur. Settur hefur verið á laggirnar starfshópur til að kanna málið. „Við þurfum einfaldlega að skoða málin vel og vandlega og finna leið til að mæta þessu vandamáli. Núverandi ástand gengur ekki mikið lengur.“

throstur@vikudagur.is

Nánar er fjallað  um málið í prentútgáfu Vikudags í dag.

Nýjast