Ég er mikill kaffimaður en það var ekkert komist hjá því í þessu starfi. Það má segja að ég sé alltaf í kaffinu, segir Helgi Ármann Alfreðsson, sem jafnan er kallaður Manni. Hann fagnar um þessar mundir hvorki meira né minna en 65 ára starfsafmæli hjá Nýju kaffibrennslunni á Akureyri. Vikudagur settist niður með Manna yfir rjúkandi kaffibolla. Þetta er Columbia, segir Manni þegar blaðamaður lýsir yfir hrifningu sinni af uppáhelltu kaffinu.
Ilmandi kaffilyktin tekur á móti manni þegar labbað er inn í Nýju kaffibrennsluna, kaffipokar og vélar á hverju strái en allt saman snyrtilegt. Sannkölluð paradís fyrir kaffiáhugamanninn. Það er ekki öllum sem finnst þessi lykt góð en mér finnst hún fín, segir Manni.
Fyrirtækið hét áður Kaffibrennsla Akureyrar en nafninu var breytt þegar hún var sameinuð kaffibrennslu Ó. Johnson & Kaaber árið 2000. Manni hóf störf hjá Kaffibrennslunni sem sendill á hjóli árið 1947, þá 14 ára gamall.
throstur@vikudagur.is
Nánar er rætt við Manna í prentútgáfu Vikudags.