Alls 100 kg af rusli fjarlægð úr fjörunni

Starfsfólk PCC á Bakka stóð í stórræðum. Mynd: PCC/Facebook.
Starfsfólk PCC á Bakka stóð í stórræðum. Mynd: PCC/Facebook.

Í liðinni viku stóðu starfsmenn PCC á Bakka við Húsavík fyrir ruslahreinsun utan athafnasvæðis fyrirtækisins í samstarfi við Ocean Missions. Fyrirtækið greinir frá þessu á Facebooksíðu sinni en þar segir að í þetta sinn hafi áhersla verið lögð á Bakkaá og strandlengjuna í næsta nágrenni.

Áður en hreinsunarstarfið hófst kynntu fulltrúar Ocean Missions stuttlega starfsemi samtakanna fyrir starfsfólki verksmiðjunnar. Hafverndarsamtökin hafa frá árinu 2019 staðið fyrir strandhreinsunum víða um land, auk rannsókna og fræðslu um plastmengun í hafinu.

„Við Bakkaá var týnt ýmiss konar rusl, þar á meðal stórsekkir sem því miður hafa fokið frá svæði PCC en undanfarin misseri hefur verklagi verið breytt til að koma í veg fyrir að slíkt gerist aftur. Einnig var strandlengjan í Bakkakrók hreinsuð og alls voru um 100 kg af rusli fjarlægð úr fjörunni,“ segir í tilkynningunni frá PCC.

Ocean Missions standa fyrir vikulegum strandhreinsunum yfir sumartímann þar sem sjálfboðaliðar fá tækifæri til að leggja sitt af mörkum.

Nýjast