Allir þingmenn Samfylkingarinnar í NA kjördæmi vilja sitja áfram

Aðalfundur kjördæmisráðs Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi verður haldinn á Húsavík á laugardaginn, þar verður væntanlega ákveðið hvernig staðið verður að vali á framboðlista flokksins. Nú liggur fyrir að allir sitjandi þingmenn kjörædmisins vilja halda áfram.

 

 „Já, ég hef ákveðið að gefa kost á mér til áframhaldandi þingstarfa næsta vor fyrir Norðausturkjördæmi,  ég mun bjóða mig fram í fyrsta sæti á lista Samfylkingarinnar,“ segir Kristján L. Möller. Hann fór síðast fyrir framboðslista Samfylkingarinnar í kjördæminu og fékk flokkurinn þá þrjá þingmenn. Sigmundur Ernir Rúnarsson sem var í öðru sæti síðast og hann vill halda áfram. „Aukin byggðajöfnun er brýnt verkefni, efling sveitarstjórnarstigsins og efnahagsmál verða án efa mikið rædd í aðdraganda kosninganna. Sömuleiðis atvinnumál svæðisins og ég vil leggja mína þekkingu og reynslu á vogarskálarnar.“ Jónína Rós Guðmundsdóttir er þriðji þingmaður Samfylkingarinnar í kjördæminu og hún vill sömuleiðis halda áfram. „Ég sækist eftir endurkjöri. Í aðdraganda kosninganna er mikilvægt að ræða sérstaklega efnahagsmál, atvinnumál og velferðarmál. Í okkar kjördæmi eru samgöngumálin ofarlega á listanum, einnig atvinnumál og menntamál.“

NÁNAR UM FRAMBOÐSMÁL SAMFYLKINGARINNAR Í PRENTÚTGÁFU VIKUDAGS SEM KEMUR ÚT SÍÐAR Í DAG

karleskil@vikudagur.is

Nýjast