Allir starfsmenn Samherja fengu mannbrodda

„Það hefur verið mikil hálkutíð að undanförnu og því miður hefur starfsfólk  runnið til og slasast. Við ákváðum þess vegna að afhenda  öllu starfsfólki fyrirtækisins mannbrodda, sem er okkar viðleitni til að fyrirbyggja slík slys. Eitt slys er einu of mikið, því hverju slysi getur fylgt skerðing á lífsgæðum, jafnvel til langs tíma,“ segir Gestur Geirsson framkvæmdastjóri landvinnslu Samherja.

Mælist vel fyrir

„Þetta hefur fallið í mjög góðan jarðveg hjá starfsfólki. Sumir eru að mæta til vinnu mjög snemma á morgnana og þá er myrkur úti. Slysahætta er þess vegna fyrir hendi og eins þegar starfsfólkið fer heim seinnipart dags eða á kvöldin.. Við óskum eftir því að mannbroddar séu notaðir í ferðum til og frá vinnu og mér sýnist að flestir geri það. Vonandi nýtast mannbroddarnir sem oftast, þegar hálka er úti. Parið af mannbroddum kostar tæpar 2.000 krónur, þannig að þetta er góð og ódýr forvörn, segir Gestur Geirsson.“

Forstjórinn er á nöglum

 „Það eru þykkir svellbunkar víða, meðal annars í götunni þar sem ég bý. Ég hef undanfarnin ár oft hugsað um að fá mér mannbrodda, en  kom því aldrei í verk. Það er einfalt að setja þá undir skóna og maður verður öruggari í hálkunni með mannbrodda undir skónum,“ segir Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri Samherja. 

Hann áætlar að búið sé að afhenda um 500 mannbrodda.

„Okkur er annt um öryggi starsmanna og þess vegna var ákveðið að afhenda öllum þessi nauðsynlegu og þægilegu öryggistæki.“

karleskil@vikudagur.is

 

Nýjast