Allar konur í bæjarstjórn Akureyrar hætta

Frá Akureyri/mynd Karl Eskil
Frá Akureyri/mynd Karl Eskil

Bæjarfulltrúar á Akureyri eru ellefu, fjórar konur og sjö karlar. L-listinn er með hreinan meisihluta, bæjarfulltrúar listans eru sex, þrjár konur og þrír karlar. Konurnar hafa nú allar gefið út að þær sækist ekki eftir endurkjöri. Þetta eru þær Halla Björk Reynisdóttir, Hlín Bolladóttir og Inda Björk Gunnarsdóttir.

Bæjarfulltrúi Vinstri grænna, Andrea Hjálmsdóttir hefur tilkynnt að hún sækist ekki eftir endurkjöri. Þar með er ljóst að allar konur í núverandi bæjarstjórn sækjast ekki eftir endurkjöri.

Nýjast