Starfsmenn Akureyrarbæjar tóku daginn snemma í morgun og hreinsuðu götur bæjarins eftir fannfergið síðustu daga. Flestar aðalgötur eru greiðfærar en þungfært getur verið í minni íbúðargötum.
Að sögn Gunnþórs Hákonarsonar, yfirverkstjóra hjá Akureyrarbæ, er búist við að allar götur bæjarins verði greiðfærar fyrir helgi. Ágæt veðurspá er fyrir helgina á Norðurlandi, gert er ráð fyrir bjartviðri, hægum vindi og frosti á bilinu 1-6 stig.
throstur@vikudagur.is