Alhvítir dagar á Akureyri 25

Sólskinsstundirnar á Akureyri voru 80,3 í mars. Mynd/Karl Eskil.
Sólskinsstundirnar á Akureyri voru 80,3 í mars. Mynd/Karl Eskil.

Hiti var lítillega yfir meðallagi um landið sunnan- og vestanvert og á vestanverðu hálendinu en rétt um eða undir meðallagi á Norðausturog Austurlandi. Meðalhiti í Reykjavík var 1,2 stig sem er 0,8 stigum yfir meðallagi áranna 1961 til 1990. Meðalhiti á Akureyri var -1,4 stig og er það um -0,2 stigum undir meðallagi sömu ára. Úrkoman mældist 46,6 mm og er það í rétt rúmu meðallagi.

Sólskinsstundir

Sólskinsstundir í Reykjavík mældust 162,5 og er það 51 stund umfram meðallag. Svo sólríkt hefur ekki verið í mars í Reykjavík síðan 1999. Á Akureyri mældust sólskinsstundirnar 80,3 og er það í rétt rúmu meðallagi.

Snjólag

Snjólétt var á landinu sunnan- og vestanverðu en töluverður snjór norðaustanlands. Alhvítir dagar voru aðeins tveir í Reykjavík. Á Akureyri voru alhvítu dagarnir 25 í mánuðinum og er það 6 dögum yfir meðallagi sama tímabils.

Nýjast