„Algjörlega tilfallandi ástand“

Frá Kjarnaskógi.
Frá Kjarnaskógi.

„Varðandi þessa gagnrýni að þá voru unnin skemmdarverk víðast hvar í skóginum kvöldið áður og aðkoman um morguninn var ekki falleg,“ segir Ingólfur Jóhannsson framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Eyfirðinga. Eins og fram kom í frétt Vikudags í síðustu viku hafði maður samband við blaðið og var ekki sáttur við ástandið í Kjarnaskógi á sunnudeginum fyrir tæpum tveimur vikum. Það sem blasti við manninum voru m.a. troðfullir rusladallar, rusl á víð og dreif, trappa brotin á leiðinni upp að grillhúsinu og ástandið á hengibrúnni langt frá því að vera í lagi.

Taldi maðurinn að þarna væri hreinlega slysahætta. Einnig gerði kona athugasemdir varðandi ástandið á salerninu þessi helgi og í framhaldinu gerði önnur kona athugasemdir við ástandið á salerninu. „Þessar myndir sem maðurinn tók og birtust í blaðinu voru teknar rétt áður en starfsmenn skógarins komu til vinnu og þetta var algjörlega tilfallandi ástand,“ segir Ingólfur. Hann segir að það gerist reglulega að óprúttnir skemmdarvargar láti til sín taka í skóginum en umgengnin sé þó yfirleitt góð.

„Flestir gestir ganga vel um svæðið en það virðist ganga í bylgjum að það séu unnin skemmdarverk. Manni grunar að þetta séu ákveðnir aðilar hér á bænum eða eitthvert „gengi“ sem dettur í gang.“

Um eftirlit í skóginum segir Ingólfur að starfsmenn Skógræktarfélagsins komi við allar helgar en ekki sé mikið um eftirlit að næturlagi. „Það er aðallega gert þegar þessar stærri helgar eru. Menn verða svo bara að skoða hvort ástæða sé til þess að auka eftirlitið almennt en við getum hins vegar ekki staðið vaktina alla sólarhringinn.“

Ráðast verður í lagfæringar

Ingólfur segir að unnið sé að því að fara í viðamiklar lagfæringar á svæðinu öllu og vonast til þess að hægt verði að ráðast í framkvæmdir næsta sumar. „Það er óskastaðan en veltur á Akureyrarbæ. Þeir hafa verið jákvæðir fyrir því og þetta mál er í farvegi. Hins vegar höfum við sinnt almennu viðhaldi í sumar og erum m.a. að bæta salernisaðstöðuna.“ Akureyrarbær stendur straum af kostnaði við rekstur Kjarnaskógar að mestu leyti en einnig fær Skógræktarfélagið styrki fyrir einstök verkefni. Ingólfur segir varlega áætlað sé fjármagn frá Akureyrarbæ í kringum tólf milljónir á ári en upphæðin hafi farið lækkandi eftir hrun.

Nýjast