Ákvað 9 ára að verða þjónn

Heba Finnsdóttir hefur verið áberandi í veitingabransanum á Akureyri undanfarin ár. Heba rekur veitingahúsin Strikið og Bryggjuna, ásamt Sigurði Jóhannssyni og Róbert Hasler. Einnig ráku Heba og Sigurður Pósthúsbarinn til skamms tíma. Í lok þessa mánaðar mun Bryggjan opna á nýjum stað og mun starfsemin eflast til muna. Heba segist vera í samkeppni við sjálfa sig og óttast ekki fjölgun veitingahúsa á Akureyri. Vikudagur spjallaði við Hebu.

„Mér finnst ánægjulegt hversu veitingareksturinn blómstrar í bænum. Það er gott bæði fyrir Akureyringa og ferðamenn að hafa meira úrval. Ég tel að aukin ferðamannastraumur til bæjarins sé ein helsta ástæðan fyrir uppgangi í veitingarekstri. Samkeppnin er alltaf að aukast og hún er af hinu góða. En eins og í mörgu öðru að þá lifa þeir hæfustu af og ég er bjartsýn á okkar rekstur.“

Fór með pabba í vinnuna

Heba lærði til þjóns í Hótel- og veitingaskóla Íslands á sínum tíma. Hún segist hafa ákveðið ung að aldri hvað hún ætlaði sér að gera í lífinu. „Ég var níu ára þegar ég ákvað að verða þjónn. Pabbi er þjónn og ég fékk stundum að fara með honum í vinnuna og fannst það voðalega spennandi. Ætli áhuginn hafi ekki kviknað þá. Þetta getur vissulega verið erfitt starf. Þú ert stöðugt í samskiptum við fólk og verður að koma vel fyrir. En þetta er svo lifandi og skemmtilegt, svo er maður alltaf að hitta nýtt fólk. Þess vegna helst maður í þessu“

Bryggjan í breyttri mynd

Bryggjan mun flytjast í gömlu Gránufélagshúsin þann 27. mars og mun starfsemin taka nokkrum stakkaskiptum við flutninginn. „Þetta er eitt af fallegri húsum bæjarins og býður upp á mikla möguleika. Við bjóðum áfram upp á eldbökuðu pizzurnar okkar og verðum einnig með spennandi nýjungar sem ekki hafa sést áður hér í bæ á matseðli."

Ítarlegra viðtal við Hebu má finna í nýjustu  prentútgáfu Vikudags.

throstur@vikudagur.is

Nýjast