Akureyrskt Kolaport

Það verður Kolaports stemmning í gamla Europris húsinu um helgina. Mynd/Þröstur Ernir.
Það verður Kolaports stemmning í gamla Europris húsinu um helgina. Mynd/Þröstur Ernir.

Nytjatorg verður opnað við Baldursnes á Akureyri í dag kl. 14:00 og verður opið alla helgina, þar sem verslunin Europris var áður til húsa. Þær Rakel Bragadóttir og Ása Arnaldsdóttir standa fyrir markaðnum. „Við höfum fundið fyrir vaxandi þörf á því að gera eitthvað í þessum dúr og okkur langar að skapa Kolaportsstemmningu hérna fyrir norðan,“ segir Rakel. Hún segir 50 manns þegar hafa skráð sig fyrir bás á markaðnum  og á von á því að fleiri bætist við.

„Þarna verður allt milli himins og jarðar í boði, bæði notað og nýtt. Það má nefna fatnað, skó, skart, snyrtivörur og ýmislegt fleira. Þetta verður fjölbreytt og skemmtilegt.“ Nytjatorgið verður opið til kl. 18:00 á morgun, föstudag. Á laugardaginn verður opið milli kl. 11:00 og 18:00 og á sunnudeginum frá kl. 13:00 til 17:00.

throstur@vikudagur.is

Nýjast