Fag- og stéttarfélög sjúkraþjálfara sameinuðust um síðastliðin áramót í eitt félag, Félag sjúkraþjálfara, og mun það starfa bæði að fag- og kjaramálum í framtíðinni. Félagið verður innan vébanda BHM og hefur aðsetur að Borgartúni 6, Reykjavík.
Nýr formaður Félags sjúkraþjálfara er Unnur Pétursdóttir, sem undanfarin 10 ár hefur starfað á endurhæfingarstöð Sjálfsbjargar á Bjargi, Akureyri. Unnur útskrifaðist sem sjúkraþjálfari frá Háskóla Íslands árið 1992 og lauk meistaraprófi í heilbrigðisvísindum frá Háskólanum á Akureyri árið 2009. Hún hefur lengi starfað að félagsmálum sjúkraþjálfara og hefur verið formaður Norðurlandsdeildar fagfélagsins sl. 6 ár.
Til sjúkraþjálfara leita um 30.000 manns á ári auk allra þeirra fjölmörgu sem njóta þjónustu þeirra innan sjúkrahúsa, hjúkrunarheimila og annarra stofnana. Sjúkraþjálfarar skipa auk þess veigamikinn sess í forvörnum, ráðgjöf og meðferð varðandi álagsmeiðsl, bæði hjá íþróttafólki og almenningi.
Með auknu langlífi landsmanna, aukinni tíðni lífsstílssjúkdóma og meiri lífslíkum þeirra sem búa við langvinna sjúkdóma og afleiðingar slysa, hefur þörfin fyrir sjúkraþjálfun vaxið hröðum skrefum undanfarna áratugi og mun væntanlega gera það áfram. Sjúkraþjálfarar hafa hins vegar einnig mikinn áhuga á þátttöku í forvörnum, svo koma megi í veg fyrir ýmsa þá kvilla sem einkenna nútímamanninn, svo sem bakvandamál, álagseinkenni og lífsstílssjúkdóma.
Helstu áherslur nýs félags eru að vera öflugur málsvari sjúkraþjálfara, gæta hagsmuna þeirra og réttinda og fylgjast með og taka þátt í umræðu um málefni þeirra. Félagið vill stuðla að fræðslu og símenntun sjúkraþjálfara og þróun sjúkraþjálfunar sem fræðigreinar með samfélagslega ábyrgð og hagsmuni almennings að leiðarljósi. Félagið mun taka þátt í norrænu og alþjóðlegu samstarfi um sameiginleg mál sjúkraþjálfara og taka þátt í umræðum um stefnumótun í heilbrigðismálum.