Akureyringar sigursælir

Keppendur frá Skíðafélagi Akureyrar unnu til fjölda verðlauna á Andrésar Andar leikunum sem fram fóru í Hlíðarfjalli sl. helgi. Keppt var í alpagreinum, skíðagöngu og snjóbrettum. Ellefu Andrésarmeistaratitlar féllu í skaut SKA í alpagreinum þar sem fjórir krakkar urðu tvöfaldir Andrésarmeistarar. Þetta eru þau Fanney Ísaksdóttir (14 ára flokki), Bjarki Guðmundsson (13 ára flokki), Arnar Birkir Dansson (15 ára flokki) og Aron Máni Sverrisson (10 ára flokki).

Þá urðu Katrín Dóra Jónsdóttir (8 ára flokki) og Bjarki Guðjónsson (14 ára flokki) Andrésarmeistarar í svigi og Sonja Líf Kristinsdóttir (6 ára flokki) varð Andrésarmeistara í stórsvigi. Einnig stóðu keppendur SKA sig vel í skíðagöngu og má nefna að þau Karen María Sigurgeirsdóttir (11 ára flokkur) og Hjörvar Sigurgeirsson (13-14 ára flokkur) urðu Andrésarmeistarar í sínum flokki með bæði frjálsri og hefðbundinni aðferð.

 

Nýjast