Akureyringar elska ís

Joger ísbúðin á Akureyri hefur notið töluverðra vinsælda í þau tæpu tvö ár sem búðin hefur verið opin í Kaupangi.

Fyrirtækið er í eigu bræðranna Sigurpáls Árna og Heiðars Þórs Aðalsteinssona og eiginkonu Sigurpáls, Ásdísar Elvu Rögnvaldsdóttur.

„Viðtökurnar hafa verið mjög góðar og þetta virðist hafa fallið vel í kramið hjá Akureyringum,“ segir Sigurpáll Árni.

Er mikil samkeppni á ísmarkaðnum á Akureyri?

„Já hún er það en við skerum okkur svolítið úr þar sem við erum með fleiri tegundir og bjóðum upp á jógúrtís. Við erum einnig með sjálfsafgreiðslu sem er okkar sérstaða. Fólki finnst þægilegt að geta búið til sinn eigin ís og fengið sér það magn af ávöxtum eða sælgæti sem það vill. Þetta er komið til að vera.

Akureyringar borða meira af ís en aðrir landsmenn, það hef ég fengið fullyrt frá ísframleiðendum þar sem mælingar með tilliti til magns og íbúafjölda sýna að Akureyringar elska ís,“ segir Sigurpáll Árni.

throstur@vikudagur.is

Nýjast