Akureyringar á Norræna ljósinu

Fimmtán íslensk ungmenni hafa verið valin til þátttöku á listahátíðinni Norræna ljósinu 2014 og þar af eru tveir Akureyringar, þau Sandra Wanda Walankiewicz og Úlfur Logason. Þátttakendur munu ferðast víða um Norðurlöndin, sinna listsköpun og sýningum, eiga samstarf við starfandi listamenn á hverjum stað og ljúka loks ferð sinni á allsherjarlistahátíð í Austur-Finnlandi næsta sumar.

Norræna ljósið 2014 byggir á fimm listgreinum; dansi, sjónlist, leiklist, sirkus og tónlist. Fyrir þá 15 þáttakendur sem veljast í hvern og einn listhóp (alls 75) er hátíðin einstakt tækifæri til að þróa sína listrænu hæfileika, vinna með öðrum skapandi ungmennum, kynnast nýrri og gamalli menningu og njóta leiðsagnar þekktra listamanna frá Norðurlöndunum.

Heimasíða hátíðarinnar.

Nýjast