Suðurlandið var sá landshluti sem flestir landsmenn heimsóttu á ferðalögum í fyrra, eða 63,3%, síðan kom Norðurlandið, 57,6 %. Þetta kemur fram í viðamikilli könnun sem gerð var fyrir Ferðamálastofu.
Um níu af hverjum tíu svarenda ferðuðust innanlands á síðasta ári og fóru þeir að jafnaði 6,8 ferðir þar sem dvalið var a.m.k. eina nótt. Þetta er svipað hlutfall og fyrri kannanir hafa sýnt.
Júlí og ágúst voru sem áður stærstu ferðamannamánuðir ársins en 68,9% ferðuðust innanlands í júlí og 61,3% í ágúst. Júní fylgir síðan fast á eftir en um helmingur ferðaðist þá. Þróunin hefur hins vegar verið sú síðastliðin ár að þeim hefur farið hlutfallslega fækkandi sem ferðast innanlands yfir sumarmánuðina þrjá. Lítilsháttar aukningu má sjá að sama skapi í ferðalögum á tímabilinu febrúar til maí.
Um helmingur gistinátta á Suðurlandi og Norðurlandi
Ferðamenn dvöldu að jafnaði 15 nætur á ferðalögum innanlands á síðasta ári. Út frá niðurstöðum um dvalarlengd innan einstakra landshluta má ætla að 26,8% gistinátta hafi verið eytt á Suðurlandinu, 24,4% á Norðurlandinu og 14,3% á höfuðborgarsvæðinu.
Enn dregur úr ferðalögum með tjald og ferðavagna
Flestir gistu hjá vinum eða ættingjum eða 45,9%. Þar á eftir kom gisting í tjaldi, fellihýsi eða húsbíl (41,3%) en samkvæmt könnunum Ferðamálastofu hefur þeim fækkað jafnt og þétt á síðustu árum sem nýta þessa tegund gistingar.
Akureyri vinsælust
Á Norðurlandi heimsóttu flestir Akureyri (43,1%), Skagafjörð (20,3%), Mývatnssveit (18,2%), Siglufjörð (18,0 %), Húsavík (14,8%) og Hvammstanga (9,2%).