Akureyri verði plastpokalaus

Frá íbúaþinginu. Mynd/Ragnar Hólm
Frá íbúaþinginu. Mynd/Ragnar Hólm

Akureyrarbær efndi til íbúaþings  snemma í nóvember í þeim tilgangi að fá fram hugmyndir íbúa um framtíð samfélagsins til langs tíma og skapa þannig grunn að nýrri langtímaáætlun í anda Staðardagskrár 21.Íbúaþingið var með þjóðfundarfyrirkomulagi, þar sem allar hugmyndir voru jafnvelkomnar.Til þingsins mættu um 70 manns sem unnu saman í 7 hópum. Í niðurstöðu þingsins um umhverfi er rætt um að við skipulag Akureyrar verði horft til náttúrugæða til eflingar búsetugæða og ferðaþjónustu.

„Almenningssamgöngur verði efldar ogumhverfisvænir samgöngukostir skipi stærri sess s.s. hjólandi og gangandi. Sjálfbær matvælaframleiðsla verði efld í samstarfi við atvinnulífið og lögð áhersla á kynningu og neyslu matvæla úr nærumhverfi. Úrgangsmálum og fráveitumálum verði komið í bætt horf, endurvinnsla aukin og dregið úr urðun úrgangs. Íbúar á Akureyri búi þar í sátt og samlyndi við umhverfi sitt, takmarki sóun á auðlindum og stuðli þannig að bættri orkunýtingu. Líta ber á umhverfismál sem atvinnumál og vinna að markmiðum um sjálfbæra þróun. Auka þarf flokkun úrgangs og efla ímynd bæjarins sem vistvæns áfangastaðar Hafa þarf meira samráð við íbúa í umhverfismálum og efla umhverfisvitund almennings.

Endurheimta þarf fjöruna og fjölga útivistarsvæðum, Gilið verði græn gata og Akureyri verði fyrsti plastpokalausi bær landsins árið 2030. Minnka þarf áherslu á einkabílinn og draga úr útblæstri  og gera fleiri matjurtagarða fyrir almenning.“

Nýjast