Lið Akureyrar Handboltafélags tapaði gegn Stjörnunni frá Garðabæ í undanúrslitum Símabikars HSÍ í leik sem var að ljúka. Lokatölur vorur 24 - 26 Garðbæingum í vil.
Stjarnan sem leikur í deild neðar en Akureyri var mun betrai í leiknum og sigur þeirra verðskuldaður. Sóknarleikur Akureyrar var hægur og byggðist of mikið á einstaklingsframtaki og þrátt fyrir stórleik Bjarna Fritzsonar dugði það ekki. Sóknarleikur Stjörnunnar var hinsvegar frábær og skóp hann eins og fyrr segir verðskuldaðan sigur þeirra.
Sannarlega mikil vonbrigði fyrir leikmenn og fjölmarga stuðningsmenn Akueyrarliðsins, sem fjölmenntu suður yfir heiðar. Leikur sem menn eflaust vilja gleyma en mega þó ekki.