Akureyri - Reykjavík

Fyrir rúmum mánuði síðan var haldinn sameiginlegur fundur borgarstjórnar Reykjavíkur og bæjarstjórnar Akureyrar í Hofi. Fundurinn var skipulagður með hætti að fundarmenn fjölluðu um eitt af eftirfarandi fjórum umræðuefnum sem voru til umfjöllunnar: Samvinna Reykjavíkur og Akureyrar, samgöngumál, velferðarmál og síðast en ekki síst fræðsla, frístundir og menning. Á fundinum fjallaði undirritaður um samgöngumál. Í minni tölu fjallaði ég meðal annars um þjóðveg eitt á milli Akureyrar og Reykjavíkur en megináhersla í mínu máli snéri að  mikilvægi Reykjavíkurflugvallar með tilliti til farþegaflutninga á milli þessara byggðakjarna.

Í mörg ár hef ég haft áhuga á því að vita svarið við eftirfarandi spurningu. Hvert er hlutfall flugfarþega í heildarfólksflutningum á milli Akureyrar og Reykjavíkur?  Ég hef á þessum tíma aldrei fundið svar við spurningunni sem ég varpa fram hér að framan. Miðað við þau gögn sem ég viðaði að mér hjá Vegagerðinni og Flugfélagið Íslands þá fékk ég svör við spurningunni. Heildarfólksflutningar á síðasta ári á þjóðvegi 1 og með flugi voru tæplega 450 þúsund á síðasta ári á milli þessara sveitarfélaga. Rétt rúmlega 40% þeirra ferðuðust með flugi eða um 188 þúsund árið 2012.

Hlutfall flugsins er hæst yfir helstu vetrarmánuðina nóvember til og með mars eða á bilinu 56-63% af þeim fjölda sem er að fara á milli Akureyrar og Reykjavíkur. Yfir sumarmánuðina er hlutur flugsins lægst í júlí og ágúst þegar veðráttan er hagstæðust til ferðalaga á landi. Þá fer hlutfallið niður í 26%. Áhrif veðurs, birtu og ökuskilyrða er því greinilega mjög stór þáttur í ferðahegðun ferðalanga á þessari leið.

Að mínu mati er hér um að ræða mikilvægt innlegg að ræða varðandi framtíðarstaðsetningu Reykjavíkurflugvallar. Því má öllum vera það fullljóst að mikilvægi flugvallarins í Vatnsmýrinni er Akureyringum, Eyfirðingum, Norðlendingum, landsbyggðafólki og að mínu viti öllum Íslendingum mikilvægur. Ef flugvöllurinn í Vatnsmýri yrði lagður niður og innanlandsflugið eða það sem væri eftir af því flutt til Keflavíkurflugvallar myndi það stuðla að ennfrekari einangrun stórra landsbyggðasvæða, skapa öryggisleysi með tilliti til verra aðgengis að stærsta og best búna sjúkrahúsi landsins. Sama ætti við um almennar samgöngur á meðal landsmanna.

Það væri áhugavert að safnað yrði upplýsingum með sama hætti og gert er hér að framan fyrir aðra flugvelli á landsbyggðinni eins. Sérstaklega væri áhugavert að sjá þetta betur skoðað fyrir stærstu byggðakjarnana á Íslandi sem lengst standa frá höfuðborginni. Þetta er unnið upp úr þeim bestu upplýsingum sem hægt er að nálgast í dag og mikilvægt er að þetta verði skoðað frekar.

Nú fer að styttast í að nýtt aðalskipulag verði kynnt fyrir Reykjavík, jafnvel á næstu vikum. Ég tel að þær upplýsingar sem hér eru settar fram séu mikilvægar í umræðunni til að upplýsa um mikilvægi flugvallarins í Vatnsmýrinni. Hætt er við að það samgöngukerfi sem við höfum búið við undanfarna áratugi myndi veikjast mikið og hafa neikvæð áhrif á alla byggðaþróun á Íslandi.

Njáll Trausti Friðbertsson

Varabæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins á Akureyri og skipar 9. sætið á framboðslista Sjálfstæðisflokksins fyrir komandi alþingiskosningar.

 

Nýjast