Akureyri er komið áfram í undanúrslit Símabikarins í handknattleik karla eftir fjögurra marka sigur gegn FH á heimavelli í gærkvöld, 30-26. Geir Guðmundsson var markahæstur í liði Akureyrar með níu mörk og Guðmundur Hólmar Helgason skoraði sjö mörk. Hjá FH var Ásbjörn Friðriksson markahæstur með átta mörk. Akureyri tekur því þátt í fyrstu fjögurra liða úrslitahelgi HSÍ sem fram fer í Laugardalshöllinni dagana 8.-10. mars.