Í vikuritinu Vísbendingu frá 5. nóvember sl. kemur fram að Akureyri er í öðru sæti á eftir Garðabæ yfir helstu "draumasveitarfélög" landsins þegar mið er tekið af fjárhagsstöðu þeirra. Einnig kemur fram að mörg sveitarfélög á Íslandi standi illa eftir efnahagshrunið en að flest hafi þau tekið á sínum málum og ýmislegt horfi til betri vegar.
Í þessari árlegu úttekt fengu nú sautján sveitarfélög, eða rétt tæplega helmingur af þeim 36 stærstu, hærra en fimm í einkunn. Árið 2011 voru þau aðeins þrettán og níu árið þar á undan.
Röð sveitarfélaganna er þessi:
| 1. | Garðabær | 9,0 |
| 2. | Akureyri | 7,2 |
| 3. | Snæfellsbær | 6,8 |
| 4. | Hornafjörður | 6,7 |
| 5. | Akranes | 6,7 |
| 6. | Dalvíkurbyggð | 6,7 |
| 7. | Eyjafjarðarsveit | 6,3 |
| 8. | Þingeyjarsveit | 6,0 |
| 9. | Seltjarnarnes | 5,7 |
| 10. | Vesmannaaeyjar | 5,4 |
| 11. | Fjallabyggð | 5,4 |
| 12. | Ölfus | 5,4 |
| 13. | Fjarðarbyggð | 5,1 |
| 14. | Borgarnes | 5,1 |
| 15. | Húnaþing vestra | 5,1 |
| 16. | Árborg | 5,0 |
| 17. | Reykjavík | 5,0 |
| 18. | Mosfellsbær | 4,8 |
| 19. | Hveragerði | 4,6 |
| 20. | Vogar | 4,5 |
| 21. | Vesturbyggð | 4,4 |
| 22. | Kópavogur | 4,3 |
| 23. | Rangárþing eystra | 4,2 |
| 24. | Bláskógarbyggð | 3,9 |
| 25. | Garður | 3,9 |
| 26. | Norðurþing | 3,9 |
| 27. | Skagafjörður | 3,8 |
| 28. | Hafnarfjörður | 3,7 |
| 29. | Ísafjarðarbær | 3,7 |
| 30. | Grindavíkurbær | 3,7 |
| 31. | Stykkishólmur | 3,6 |
| 32. | Rangárþing ytra | 3,4 |
| 33. | Reykjanesbær | 3,4 |
| 34. | Álftanes | 3,1 |
| 35. | Fljótsdalshérað | 2,7 |
| 36. | Sandgerði | 2,5 |