Akureyri - Dublin

„Það gengur ágætlega að bóka en ennþá eru sæti laus,“ segir Ragnheiður Jakobsdóttir hjá Ferðaskrifstofu Akureyrar, sem í samstarfi við Icelandair býður upp á beint flug frá Akureyri til Dublinar um páskana.

Flogið verður út 28. mars og til baka 1. apríl. Vélin tekur 180 manns.

„Það er alltaf einhver áhugi fyrir þessum páskaferðum. Við höfum áður boðið upp á ferðir til Dublinar á þessum tíma sem hafa verið vinsælar, en áhuginn hefur þó oft verið meiri en í ár.“

Um mögulegar skýringar á því segir Ragnheiður: „Fólk virðist einfaldlega ferðast meira á öðrum tíma ársins.“ Engin millilandaflug verða í boði frá Akureyri í sumar en næsta haust verður flogið beint til Stokkhólms. „Við vonumst eftir því að fleiri áfangastaðir bætist við á næstu mánuðum þar sem

haustferðirnar njóta vinsælda.“

throstur@vikudagur.is

Nýjast