Akureyri Backpackers:Eldhús tekið í notkun í dag

Geri Gíslason og Inga Lilja Ólafsdóttir reka Akureyri Backpackers
Geri Gíslason og Inga Lilja Ólafsdóttir reka Akureyri Backpackers

„Allt er orðið klárt í eldhúsinu, þannig að við getum frá og með deginum í dag boðið gestum okkar upp á ýmsa rétti,“ segir Geir Gíslslason framkvæmdastjóri Akureyri Backpackers í Hafnarstræti.  Hjartað í húsinu er á jarðhæðinni og þar er hægt að fylgjast með fjölbreyttu mannslífinu í Hafnarstræti. Á efri hæðum er rekið gistiheimili.

“Aðsóknin að gistihúsinu hefur verið góð og sömu sögu er að segja um kaffihúsið. Með tilkomu eldhússins skapast enn frekari möguleikar, þannig að ég er bjartsýnn á framtíðina,”segir Geir Gíslason.

karleskil@vikudagur.is

Nýjast