Akureyri 150 ára í dag!

Akureyrarbær. Mynd: Hörður Geirsson.
Akureyrarbær. Mynd: Hörður Geirsson.

Akureyrarkaupstaður fagnar 150 ára afmæli sínu í dag og verður haldið upp á daginn með ýmsum hætti. Dagskrá tileinkuð skólabörnum í leik-og grunnskóla hefst á Ráðhústorgi kl. 10:00 og þá verða hvít ljós tendruð í miðbænum og eru bæjarbúar eru hvattir til taka þátt í að skreyta bæinn á afmælinu með því að setja upp hvítar ljósaseríur. Þá  verða tónleikar í Hofi í kvöld og hestasýning á flötinni fyrir framan Samkomuhúsið. Þetta er aðeins brot af því sem verður í boði. Á Dvalarheimilinu Hlíð verður einnig dagskrá allan daginn og opið hús fyrir almenning kl. 16-18, en Hlíð fagnar 50 ára afmæli sínu í dag.

Dagskráin í dag:

KL. 10: DAGSKRÁ TILEINKUÐ LEIK-GRUNNSKÓLABÖRNUM AKUREYRAR Á RÁÐHÚSTORGI
Dagskrá á Ráðhústorgi, þar sem leik- og grunnskólanemendur koma á torgið í skrúðgöngu og afhenda Akureyringum stórt mósaíkverk með afmælismerki bæjarins og mun Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri taka á móti verkinu fyrir hönd bæjarbúa. Þessi glæsilegi hópur mun syngja afmælissönginn fyrir afmælisbarnið og fleiri lög til hæfa tilefninu. Hvanndalsbræður munu stíga á svið og syngja og í lok dagskrár verður börnunum boðið upp á mjólk og skúffuköku. 

KL. 14: OPINN HÁTÍÐARFUNDUR BÆJARSTJÓRNAR Í HOFI 

KL. 15: OPNUN SÝNINGARINNAR ARSBOREALIS Í KETILHÚSINU-SJÓNLISTAMIÐSTÖÐINNI
Í Sjónlistamiðstöðinni - Ketilhús opnar sýningin Arsborealis – Menning, list og saga á norðurhveli jarðar.  Sýningin er kynning á sögu, menningu og list fólksins sem býr á norðurslóðum,  einangruðu lífi þess og baráttu við náttúruöflin. Sýnt verður með fjölbreyttum hætti (multi media) hvernig fólk nýtti sér það hráefni sem fyrir hendi var til að lifa af og hvernig því hefur tekist að nýta sér menningararfinn til að búa til frábæra listmuni og tískuvöru sem mun vonandi efla lífsgæði á norðurslóðum í framtíðinni. Sérstök áhersla verður lögð á kynningu fyrir börn og unglinga því stór þáttur í varðveislu menningararfs norðurslóða er að upplýsa æsku þeirra þjóða sem þar búa um hann.

KL. 16-18: DAGSKRÁ OG OPIÐ HÚS Á DVALARHEIMILINU HLÍР
Á Dvalarheimilinu Hlíð verður dagskrá allan daginn og opið hús fyrir almenning kl. 16-18, enda fagnar heimilið 50 ára afmæli.

KL. 20: TÓNAGJÖF TIL AKUREYRINGA Í HOFI
Á afmælisdeginum verða haldnir tónleikar í menningarhúsinu Hofi kl. 20 og er þarna um að ræða Tónagjöf til Akureyringa. Það er Eyþór Ingi Jónsson organist við Akureyrarkirkju sem hlaut starfslaun listamanns 2011-2012 á Akureyri sem leitaði til nokkurra tónskálda er tengjast bænum og fékk til liðs við sig um að semja tónverk, sem verður gjöf til bæjarins. Úr varð að 6 tónskáld sömdu ný tónverk sem frumflutt verða af Afmæliskór Akureyrar sem settur var saman af þessu tilefni.
Verkin sem leikin verða eru:  
Aldamótakvæði (Michael Jón Clarke við texta Páls J. Árdal)
Akureyri (Birgir Helgason við texta Jóns Sigurðssonar ljósmyndara)
Hvíld (Hörður Áskelsson við texta Snorra Hjartarsonar)
Lítil kveðja til Akureyrar (Jón Hlöðver Áskelsson við texta Böðvar Guðmundssonar)
Tröppurnar (mini-ópera eftir Gísla Jóhann Grétarsson við texta Margrétar Brynjarsdóttur)
Þrusk (Sigrún Magna Þórsteinsdóttir við texta Svavars A. Jónssonar)

Auk þess flytja allir viðstaddir afmælissöng Jóns Hlöðvers Áskelssonar, Akureyri 150 ára.
Aðgangur ókeypis en nauðsynlegt að tryggja sér miða í miðasölu Hofs.

KL. 20: HESTASÝNING Á SAMKOMUHÚSFLÖTINNI
Hestamannafélagið Léttir verður með sýningu á flötinni fyrir neðan Samkomuhúsið klukkan 20 í tilefni afmæli Akureyrar. Gæðingar og knapar sýna listir sínar ásamt því að notkun hestsins í 1100 ár verður sýnd í stórum skrefum. Vert er að geta þess að þessi sýning verður við kertaljós ásamt eltiljósum frá Samkomuhúsinu.

KL. 21: HUNDUR Í ÓSKILUM Á GRÆNA HATTINUM

Nýjast