Akureyri 1. desember:Íbúar tæplega átján þúsund

Frá Akureyri
Frá Akureyri

Íbúum Akureyrar fjölgaði um 88 frá 1. desember í fyrra til 1. desember á þessu ári, samkvæmt upplýsingum frá íbúaskrá bæjarins. Íbúarnir voru 17.869 þann 1. desember í fyrra, en 17.957 á sama tíma á þessu ári.

Karlar voru samtals 8.875 um síðustu mánaðamót og konur 9.082 á sama tíma.

 

Börn 6 ára og yngri voru samtals 1.896 en í aldrurshópnum 7-18 ára voru á sama tíma samtals 3.157 íbúar. Á aldrinum 19-66 ára voru samtals 10.819 íbúar og þar fyrir ofan voru þann 1. desember 2.085 íbúar skráðir á Akureyri.

Íbúatalan lækkaði nokkuð á seinni helmingi ársins, því í sumar var átjánþúsundasta Akureyringnum fagnað sérstaklega.

karleskil@vikudagur.is

Nýjast