Akureyrarbær tekur 125 milljóna króna lán

Lánið er tekið til að fjármagna gatnagerð
Lánið er tekið til að fjármagna gatnagerð

Bæjarstjórn Akureyrar hefur samþykkt að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð krónur 125.000.000 til átta ára, í samræmi við samþykkta skilmála lánveitingarinnar. Til tryggingar láninu standa tekjur sveitarfélagsins, en lánið er tekið til að fjármagna framkvæmdir við gatnagerð. Lánið er af endurlánafé frá Þróunarbanka Evrópuráðsins og samþykkti bæjarstjórn samhljóða að taka lánið. Fjármálastjóra var jafnframt veitt fullt og ótakmarkað umboð til að ganga frá málinu.

karleskil@vikudagur.is

 

Nýjast